Uppskriftir og fróðleikur um spelt, bakstur og mat. |
|
Færslur: 2014 Júní13.06.2014 22:55KjúklingasúpaHráefni: 1 msk. Olía 1 tsk. Karrý 2 stk. Rauðar paprikur 2 stk. Grænar paprikur 1 stk. Púrrulaukur (blaðlaukur) 10 stk. Hvítlauksgeirar 1 L. Vatn (ég set alltaf 1,5 L) 1 flaska. Hot Chilli tómatsósa frá Hunts (má líka vera mild) 1 askja. Rjómaostur (400 gr) 1/4 L. Rjómi (ég set 1/2 - 1 L af rjóma eða 1/2 L. af rjóma og 1 dós af kókosmjólk) 2 stk. Kjúklingateningar 2 stk. Grænmetisteningar 4 stk. Kjúklingabringur Salt og pipar eftir smekk (Mér finnst gott að setja Tondorri krydd í staðin fyrir pipar) Aðferð: Saxið paprikurnar og púrrulaukinn smátt eða bara eftir smekk. Hitið pönnuna og setjið olíuna og karrýið á pönnuna og látið hitna vel, setjið saxað grænmetið á pönnuna og rífið eða pressið hvítlaukinn út í og látið grænmetið svitna. Setjið vatnið og teningana í stóran pott og kveikjið undir á miðlungshita. Setjið grænmetið af pönnuni í pottinn og hrærið í. Ekki þvo pönnuna því gott er að steikja kjúklingabringurnar upp úr kryddinu sem er eftir er á pönnuni þegar grænmetið er sett í pottinn. Og steikjið bringurnar þar til þær eru steiktar í gegn. Þetta tekur ca. jafn langan tíma og láta suðuna koma upp á súpuni. Bætið rjómaostinum, Chilli sósuni og rjómanum saman við það sem er í pottinum þegar bringurnar eru komnar á pönnuna og látið suðuna koma upp við miðlungshita (því ef notaður er hæðsti hitinn þá er hætt við því að súpan brenni við eða það ferstist við botninn út af öllun rjómanum og rjómaostinum). Svo þegar suðan er kominn upp er súpan tilbúinn. Saltið og kryddið eftir smekk. Þegar bringurnar eru tilbúnar eru þær brytjaðar niður í litlabita og settar saman við súpuna. Það má bera súpuna fram með brauði og/eða tortilla flögum en það þarf ekki því súpan er svo matar mikil. Athugið: Til þess að gera þessa súpu fyrir grænmetisætur þá má sleppa kjúklingnum og kjúklingateningunum og bætt við fleirrum grænmetisteningum. Þetta er stór uppskrift og þá upplagt að gera hana ef von er á mörgum gestum og gott er að gera súpuna daginn áður því hún er ekki síðri daginn eftir og er jafnvel betri þá. Einnig er gott að frysta súpuna. 12.06.2014 04:00Mexíkósk súpaHráefni: 1 stk grillaður kjúklingur Aðferð: Laukur + hvítlaukur skorinn og mýktur í olíunni í stórum potti, öllu hinu blandað saman við. Látið malla í ca. 2 tíma. Smakkað til og má ef til vill setja meiri hvítlauk eða krydd. 1 stk grillaður kjúklingur brytjaður og settur út í ca. ½ tíma fyrir framreiðslu. Sýrður rjómi, nachoflögur og rifinn ostur borið fram með súpunni. 12.06.2014 02:29SveppasúpaHráefni: 4 msk sýrður rjómi Aðferð: Hellið sjóðandi vatni yfir sveppina og látið liggja í ca. 20 mínútur. Laukurinn og hvítlaukurinn léttsteiktur upp úr smjörinu, sveppunum bætt útí ásamt 1 msk af ólífuolíunni, látið malla við vægan hita í 5-10 mínútur. Bætið víni og sojasósu út í, ásamt kryddjurtunum. Látið krauma áfram í 10 mínútur. Síið sveppavökvann og bætið soði við, heildarmagn er ca. 1,2 lítrar, og bætið kartöflunni við, suðan látin koma upp og soðið áfram við lágan hita í 30 mínútur.
|
Tenglar
Eldra efni |
© 2021 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is