Uppskriftir og fróðleikur um spelt, bakstur og mat. |
|
Flokkur: Pottréttir29.11.2014 00:00PakistaniHráefni: 500 gr. Hakk 2 stk. Meðalstórir laukar 100 gr. Smjörlíki 1 dós. niðursoðnir tómatar 2-3 tsk. Tómatpúrra 1 tsk. Papripukrydd 2 tsk. Karrý 1 tsk. Engifer 1 tsk. Hvítlauksduft. 2 tsk. Kóriander 1 1/2 tsk. Grahm Masala (sleppi þessu alltaf) 2 tsk. Salt Aðferð: Þurrsteikjið hakkið og setjið í skál. Saxið laukinn og steikjið hann í potti í smjörlíkinu í smá stund en passið að brenna hann ekki, á að vera ljós. Þá bætið þið öllu kryddinu saman við. Þá er tómötunum og tómatpúrruni blandið vel saman. Loks er steikta hakkið bætt saman við gumsið í pottinum og látið mala í 30 mín. Gutt er að bera þetta fram með hrísgrjónum og vefjum (tortilla) og jafnvel heitum mæisbaunum. Vefjur Hráefni: 5
dl. Spelt Sigtið
speltið og saltið í skál, nuddið olíunu inn í speltið og loks er
vatninu bætt saman við í smá skömtum og hnoðað. fletjið út og þurrsteikt
á pönnu. Gott er að bleita klút til að hafa undir og yfir kökunum þegar
búið er að steikja þær. Ath. passið að steikja ekki of mikið því þá
verða kökurnar stökkari og þá erfiðara að vefja þeim saman. 1 tsk. Salt 1/2 dl. olía 150-175 ml. Heitt vatn Aðferð: 17.11.2014 23:21Pottréttur LínuHráefni: 1 kg. Hakk 1 1/2 L. vatn 1 msk. grænmetiskraftur (frá Himneskt og færst í Bónus) 100 gr. Smjör 2 stk. Gul paprika 2 stk. Græn paprika 1 askja Sveppir 2 stk. Laukar (stærð eftir smekk) 1 dós Hunts pasta sauce með Roasted Garlic & Onion (26 OZ eða 737 gr) 2 tsk. Pure Garlic (Frá Santa Maria, er með kvörn og færst í bónus) 4 tsk. Chili Explosion (Frá Santa Maria, er með kvörn og færst í bónus) 1 bolli. Hrisgrjón (ósoðin) Aðferð: Saxið grænmeti eftir smekk og steikjið á pönnu í smjörinu(mér finnst alltaf best að steikja sveppina í smástund áður en ég sett hitt græmnetið út á pönnuna) og kryddið með helmingnum af kryddinu. Á meðan verið er að steikja grænmetið þá er vatninu og grænmetiskraftinum sett í stóran pott og látið sjóða. Þá er græmnetinu helt saman við soðið í pottinum og hitinn lækkaður undir pottinum en passa að suðan haldist undir pottinum. Hakkið steikt (ekki þvo pönnuna áður) og kryddað með restinni af kryddinu þegar það er orðið vel brúnað. Á meðan hakkið er að steikjast þá er Hunts sósan bætt út í pottinn með soðinu og grænmetinu og muna að hræra af og til í pottinum allan tíman. Þegar hakkið er brúnað og kryddað þá er því bætt saman við það sem er í pottinum og að lokum eru hrísgrjónunum bætt saman við kássuna. Sjóðið í minnst 30 mín og hrærið reglulega í á milli því hrísgrjónin villja falla til botns. Ef vökvinn er of mikill þá er hægt að þykkja kássuna með ljósum sósujafnara. ATH! Kryddið er allfarið eftir smekk setji meira ef þið viljið hafa þetta sterkt, minna ef þið vilji ekki hafa mjög sterkt. 29.07.2014 13:55Svínahnakki í mango chutney.Hráefni: 4-6 Svínahnakkasneiðar 1 askja sveppir 2-4 paprikur (Rauð, græn, gul eða eftir smekk) ½-1 stk. Púrrulaukur 1 krukka Mango chutney sósa ½ L. Rjómi eða dós af Kókosmjólk. Tondori krydd.
Aðferð: Skerið kjötið í munnbita og kryddið með tondori kryddinu, skerið grænmetið og steikið. Mér finnst best að byrja á sveppunum og steikja þá upp úr smjöri. Þegar grænmetið er steikt er það tekið af pönnuni og kjötið steikt á meðan er sósan og rjóminn sett í pott og hitað því næst er grænmetið sett smá stund á pönnuna og allt sem er á pönnunni sett í pottinn með sósuni þegar suðan er kominn upp á henni. Látið mala í 20-30 mín. Berið fram með hrisgrjónum og fersku grænmetri.
|
Tenglar
Eldra efni |
© 2021 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is